Við auglýsum tvær lausar stöður. Tækniteiknara og raflagnahönnuð.
Fyrirspurnir og umsóknir sendast á liska@liska.is, merktar starfsheitinu sem sótt er um. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2024.
Örn er byggingaverkfræðingur með sérhæfingu í sjálfbærni bygginga og þá sérstaklega gagnvart dagsbirtuhönnun. Örn hefur einnig tileinkað sér umsjón og ráðgjöf varðandi upplýsingalíkön mannvirkja (BIM).
Örn stundaði nám við Háskóla Íslands og Konunglega Tækniháskólann í Stokkhólmi (KTH) þaðan sem hann útskrifaðist með mastersgráðu í byggingarverkfræði (e. M.Sc. Architectural Engineering).
Þegar Örn er ekki í vinnunni að greina dagsbirtu eða annað líkt tileinkar hann tímanum sínum ljósmyndun eða einhverskonar útivist en það eru hans helstu áhugamál.
Annað....
Sérsvið:
Commentaires